mánudagur, 12. febrúar 2007

Kuldi og skíði, hvað er betra?

Síðustu vikur hafa verið nánast fullkomnar til skíðaiðkunar. Frostið hefur verið -10 til -18 °C og miklar stillur eins og venja er til hjer í Þrándheimi. Ég hef því verið að njóta Skandinavísks friluftslivs eins og aðrir hér, enda brosa menn sko hringinn þegar snjórinn er nægur. Það sama gildir reyndar á sumrin þegar það rignir. Þá eru Norsarar voðalega glaðir því þeir vita að þá safnast nóg af vatni í uppistöðulón virkjananna sem skilar sér svo til framleiðslu góðra hluta (n.b. án losunar CO2). Hér gildir því rigning á sumrin eða snjór og kuldi á veturna => bros :)

Hverfið mitt, Baklandet, á fögrum vetrarmorgni.

Kallinn í góðum gír á fjellskíðum í Bymarka.

Jens skólafélagi minn ásamt mér (Sigurd eins og norðmenn kalla mig) að fara að fá heitt kakó í Grönlie hytte í Bymarka.

Undarlegur norskur húmor

Eins og margir vita þá hafa Norsarar nokkuð skondinn húmor sem snýst oft um hversdagslega hluti. Veðrið er mjög mikilvægt umræðuefni meðal manna og margir láta nú smá frosthörkur og manndrápshálku sko ekki stoppa sig frá því að jogga eða hjóla. Norskur rannsóknarfélagi minn sendi mér eftirfarandi "brandara" um það hvernig Norsarar haga sér í mismunandi veðri samanborið við íbúa annarra landa. Maður þarf kannski að hafa kynnst Norsurum eða búið hér til fatta allt djókið:

Temperatures in the world and Norway

+15°C / 59°F
This is as warm as it gets in Norway, so we'll start here. People in Spain wear winter-coats and gloves. The Norwegians are out in the sun, getting a tan.

+10°C /50°F
The French are trying in vain to start their central heating. The Norwegians plant flowers in their gardens.

+5°C /41°F
Italian cars won't start. The Norwegians are cruising in cabriolets.

0°C /32°F
Distilled water freezes. The water in Oslo Fjord gets a little thicker.

-5°C /23°F
People in California almost freeze to death. The Norwegians have their final barbecue before winter.

-10°C /14°F
The Brits start the heat in their houses. The Norwegians start using long sleeves.

- 20°C /-4°F
The Aussies flee from Mallorca. The Norwegians end their Midsummer celebrations. Autumn is here.

-30°C /-22°F
People in Greece die from the cold and disappear from the face of the earth. The Norwegians start drying their laundry indoors.

-40°C /-40°F
Paris starts cracking in the cold. The Norwegians stand in line at the hotdog stands.

-50°C / -58°F
Polar bears start evacuating the North Pole. The Norwegians army postpones their winter survival training awaiting real winter weather.

-70°C / -94°F
The false Santa moves south. The Norwegians army goes out on winter survival training.

-183°C /-297.4°F
Microbes in food don't survive. The Norwegians cows complain that the farmers' hands are
cold.

-273°C /-459.4°F
ALL atom-based movement halts. The Norwegians start saying, "Faen, d e kaldt i dag." (Shit, it's freezing today!)

-300°C /-508°F
Hell freezes over; Norway w ins the Eurovision Song Contest

sunnudagur, 24. desember 2006

Gleðileg jól

Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Takk fyrir jólakort og kveðjur. Ég verð duglegri að senda kveðjur í pappírsformi næstu jól þegar ég hef meiri tíma fyrir slíkt eftir flutninginn til Íslands. Hafið það sem allra best og vonandi fer enginn í jólaköttinn þetta árið.

Bestu jólakveðjur úr Kópavoginum, Siggi.

þriðjudagur, 19. desember 2006

Lutefisk elskere

Ég skellti mér á Ørens kro niður við Solsiden (gamli slippurinn í Þrándheimi) ásamt nokkrum félögum úr deildinni og við fengum okkur hinn fræga þjóðlega norska "Lutefisk" sem er fastur liður í aðdraganda jóla, svona svipað fyrirbæri og kæst skata á Íslandi. Við fiskæturnar fengum þessa fínu smekki eins og sést hér að neðan. Hvað fiskinn varðar þá var hann bara fínn. Þetta er þorskur sem er þurrkaður og svo settur í einhverja vatnsblöndu, NaOH, eða eitthvað slíkt. Í þessu vatni þá bólgnar hann út og verður mun fyrirferðarmeiri en fyrir þurrkunina og svona hlaupkenndur. Þetta er svo borðað með beikoni, kartöflum og grænum baunum (þó ekki Ora grænum baunum), brúnosti, sýrópi, sinnepssósu og svo er herlegheitunum skolað niður með staupi af norsku ákavíti og øli frá brødrene Dahl's. En stemningin er víst það sem gerir þetta svona skemmtilegt.
Verkfræðingarnir flottir með smekkina. Heiko sýnist nú vera nokkuð syfjaður eftir alla skýrsluvinnuna síðustu vikurnar.

Ceramic fólkið til vinstri, Katie og hennar þýski herr. Charlotte og Johannes Heikoson til hægri.

Svona lítur svo Lutefisk út.

fimmtudagur, 14. desember 2006

Já það er sko munur að nota LaTeX ;-)

Já svona er það þegar maður aðlagast um of nördasamfélaginu að það fer að valda misskilningi. En eins og Lovísa benti réttilega á þá mátti misskilja mig á msn um daginn þegar ég staðhæfði að "LaTeX væri málið". Þarna átti ég að sjálfsögðu við ritilinn LaTeX en ekki eitthvað annað sem tengist lítið málinu. Að vísu verð ég nú að viðurkenna það að ég þarf að klæðast latex hönskum þegar ég nota rafeindasmásjánna því þar má ekki snerta neitt með berum höndum (og hér á ég að sjálfsögðu við að ekki megi snerta lofttæmisklefann án hanska, svona til að fyrirbyggja en meiri misskilning).
En ég mæli sko 100% með LaTeX fyrir alla þá sem þurfa að skrifa skýrslur eða ritgerðir í stærri kantinum. Þessi ritill er mikið notaður innan verkfræðisamfélagsins og er mjög einfaldur og ótrúlega þægilegur. Þú hefur fulla stjórn yfir því hvað birtist hvar og ritillinn gerir ekkert sjálfvirkt eins og er svo algengt með Word og Excel og veldur oft vandræðum. Bæði er hægt að skrifa út pdf skjalsnið eða ps skjalsnið sem eru bæði ákaflega góð því þau sína á skjánum nákvæmlega það sem kemur út úr prentaranum (sem Word gerir oft ekki). Það er hægt að ná í forritið TeXnicCenter ókeypis víða á netinu og svo þarf þýðandann MikTeX til að þýða kóðann. Ég get sent þeim sem hafa áhuga grunnkóða í skýrlu svona til að breiða út fagnaðarerindið. Hér að neðan sést notendaviðmótið.

miðvikudagur, 13. desember 2006

Síðasta prófinu lokið

Ef einhverntíma er tími til að gleðjast, þá er það örugglega þegar maður lýkur sínu síðasta prófi. Hvort þetta hafi verið síðasta prófið í mínu lífi kemur í ljós síðar en ég er allavega búinn með þau sem ég tek hér í Noregi. Í morgun tók ég sumsé munnlegt próf í leskúrsunum mínum og stóð fyrir framan prófessorinn og svaraði spurningum og útskýrði ýmislegt sem tengist mínu sérsviði. Bara nokkuð afslappað og gekk bara bærilega. Það er samt svo skrýtið þegar á það ég lít að vera búinn með allt sem heitir fyrirlestrar, próf og heimadæmi.
Það verður samkoma hjá okkur nemendum á Den gode nabo í kvöld til að fagna þessum áfanga eða syrgja eftir því hvað mönnum finnst:)

Einungis 8 dagar í að ég fari út. Orðasambandið fara út merkti jafnan í fornu mál ‘fara til Íslands (frá Noregi)’ en sú merking mun dáin drottni sínum.

Á dagskrá þangað til: Skrýrsluvinna í LaTeX.

Sjáums.

mánudagur, 11. desember 2006

Alltaf gaman þegar Mourinho er pirraður...

Næst bestu liðin á Englandi, Skitturnar og Ch€₤$k¥, töpuðu bæði tveimur stigum um helgina þegar þau gerðu jafntefli 1-1. Mourinho ásakar Arsenal um að vinna með Manchester United og segir liðin reyna að koma í veg fyrir að Chelsea geti unnið deildina. Hvað er Mourinho eiginlega að pæla, eins og Arsenal fari ekki í alla leiki til að vinna og eins og þeir hafi engan áhuga á að vinna deildina, nei nei, þeir eru sko í samsæri með United gegn Chelsea. Mourinho tekst allaf að finna einhverjar afsakanir þegar hans menn eru ekki að spila vel í stað þess bara að sætta sig við að íþróttir eiga ekki að vera þannig að eitthvað sé öruggt eða gefið.

Hinsvegar gat maður ekki annað en skemmt sér yfir einvígi þeirra Drogba og Lehman og aðdáungarverðum leikrænum tilburðum þeirra til að leika á dómarann. Eins og Drogba er nú frábær leikmaður þá er þetta nú frekar pínlegt að fullfrískur maðurinn geti ekki staðið í lappirnar þegar þessi þýski durtur klappar aðeins á bakið á honum til að hvetja hann áfram:(

Þeir fóstbræður Eggi og Bjöggi hafa svo rekið stjórann Alan Pardew frá West Ham. Spurning hvort Gaui Þórðar taki ekki bara við og geri þetta að alvöru íslensku floppi. Já allavega mun nýtt andlit horfa upp úr þessari verslunarkörfu von bráðar og vonandi að þeir félagar hafi nú ekki verið að kaupa köttinn í sekknum í þessum viðskiptum sínum.

Þetta var nú bara smá skot um enska botann til að minna fólk á að United eru komnir heim, þ.e. á toppinn og verða vonandi þar það sem eftir lifir leiktíðar.

mánudagur, 4. desember 2006

Ein mynd segir meira en mörg orð, segir í máltækinu...

Ég er búinn að setja nokkrar "nýjar" myndir inn undir tengilinn "nýjar myndir", einkar frumlegt ekki satt.? En þegar ég var að renna í gegnum myndasafn síðustu mánaða þá er nú ein mynd sem er í uppáhaldi, en hún er af sjálfri prinsessunni í fjölskyldunni, Svanhildi litlu systur. Ég skaut þessari mynd þegar hún var að fara í skólann í fyrsta sinn núna í ágúst. Litirnir eru sko alveg pottþéttir, bleik/fjólublár klæðnaður greinilega inn og spurning hvort þetta er skólataska með stelpu eða öfugt;=) Ótrúlegt hvað tíminn líður, Svandhildur fæddist einmitt þegar ég var í kórferð með MA kórnum í 3. bekk og það kom frétt um það í Hugins fréttapésanum Stjórnin segir ef mig misminnir ekki. Nú er hún bara byrjuð í Hjallaskóla í Kópavogi. Spurning hvort á þessari mynd séu fyrstu spor á langri skólagöngu og hvort hún fetar jafn mörg spor og við Ragnheiður (stærri litla systir sem er í 6.X í MR, magnað eða hvað?), en ég er á mínu 20 skólaári núna og komið nóg í bili eftir það held ég bara.